Ég stofnaði Fjármálastýringu ehf. vegna þess að mörg lítil og meðalstór fyrirtæki standa frammi fyrir sömu áskoruninni: þau hafa góða vöru, duglegt fólk og raunverulegan rekstur en skortir skýra yfirsýn yfir fjárhaginn. Eigendurnir vita hvað gerðist í fyrra, en ekki hvert þau eru að fara. Markmið mitt er einfalt: að hjálpa fyrirtækjum að skilja reksturinn nógu vel til að taka ákvarðanir með vissu og ná þeim árangri sem þau stefna að.

Áður en ég stofnaði fyrirtækið starfaði ég hjá alþjóðlegum fyrirtækjum á Íslandi og í Svíþjóð, meðal annars í flutningum og fasteignum. Þar vann ég við arðsemisgreiningar, fjárhagsáætlanir, sjóðstreymisstýringu og rekstrarumbætur, verkefni sem snúast öll um sama hlutinn: að breyta tölum í ákvarðanir sem skila árangri.

Ég er með BSc í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og MS í hagfræði frá Háskóla Íslands. Sú blanda verkfræðileg nákvæmni og hagfræðileg sýn á val og afleiðingar er sá grunnur sem ég byggi vinnu mína á.

Darri Hilmarsson, fjármálastjóri í hlutastarfi

Gildi Fyrirtækisins

Heilindi

  • Að standa við sín loforð.
  • Að hafa hugrekki til að segja sannleikann, líka þegar hann er óþægilegur.
  • Að hafa auðmýkt til að viðurkenna mistök.

Ábyrgð

  • Að eigna sér niðurstöðurnar, ekki bara ráðgjöfina.
  • Að mæta á staðinn þegar á reynir, ekki bara þegar vel gengur.
  • Að bera ábyrgð á eigin orðum og gjörðum.

Framför

  • Að hafa forvitni til að leita að betri leiðum.
  • Að gera hlutina aðeins betur í dag en í gær.
  • Að mæla árangurinn í virði fyrir viðskiptavininn.

Tilgangur fyrirtækisins

Tilgangur okkar er að veita fyrirtækjum fjárhagslega innsýn svo þau geti tekið ákvarðanir og gripið til aðgerða sem skila þeim að markmiðum sínum.

Hafa samband

Vinsamlegast fylltu inn nafn.
Vinsamlegast fylltu inn gilt netfang.
Vinsamlegast fylltu inn skilaboð.

Takk fyrir! Við munum hafa samband við þig fljótlega.